Losun
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni,
bæklingnum eða umbúðunum táknar að fara verður með
allan rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma á
sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi
krafa á við um Evrópusambandið og önnur svæði þar sem
sérstakir móttökustaðir eru til staðar. Hendið þessum vörum
ekki með heimilisúrgangi.
Það að fara með vöruna á móttökustað minnkar losun
óflokkaðs sorps og hjálpar til við endurvinnslu. Nánari
38 Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia
upplýsingar um safnstaði eru veittar hjá söluaðilum,
viðkomandi yfirvöldum á staðnum, framleiðslueftirliti í
viðkomandi landi eða umboðsaðila Nokia á staðnum.
Upplýsingar um Eco-yfirlýsingu vörunnar og leiðbeiningar um
skil á úreltum vörum er að finna í landaupplýsingum á
www.nokia.com.