
Stafræn réttindi
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar
réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.
höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu
tæki er hægt að opna efni sem er verndað með WMDRM 10,
OMA DRM 1.0, OMA DRM 1.0 framsendum lás og OMA DRM 2.0.
Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni
kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar
til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænum réttindum
sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess
stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu. Endurvakning
slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er
verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun
efnis sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir
opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite til að taka
öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt
opnunarlyklum þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig
gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár í tækinu
skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það
takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.