Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til
að ganga úr skugga um að þú notir ósvikna Nokia rafhlöðu
skaltu kaupa hana af viðurkenndri þjónustumiðstöð eða
söluaðila Nokia og skoða heilmyndarmiðann líkt og lýst er í
eftirfarandi skrefum:
Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki
fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé ósvikin. Hafir þú
minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin
Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til
viðurkenndrar þjónustumiðstöðvar eða söluaðila Nokia. Ef
ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila
rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.