
Viðbótarþjónusta
Hægt er að uppfæra Kort og fá
raddleiðbeiningar en til að nota slíkan
búnað þarf svæðisbundið leyfi.
Nauðsynlegt er að hafa samhæft ytra GPS-
tæki sem styður þráðlausa Bluetooth-
tækni til að nota þjónustuna.
Til að kaupa leiðsagnarþjónustu með
raddleiðsögn velurðu
Valmynd
>
Skipuleggjari
>
Kort
>
Viðbótarþjónusta
>
Kaupa leiðsögn
og
fylgir leiðbeiningunum.
Til að nota leiðsögn með
raddleiðbeiningum verðurðu að leyfa
kortaforritinu að tengjast netkerfi.
Leyfið fyrir leiðsögninni er tengt við SIM-
kortið. Ef annað SIM-kort er sett í símann
verðurðu beðin/n um að kaupa leyfi þegar
þú ræsir leiðsögn. Þegar kaupin fara fram
er þér boðið að flytja leyfið sem þegar er
til yfir á nýja SIM-kortið án endurgjalds.