Sérþjónusta
Ef nota á símann verður áskrift að
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera
fyrir hendi. Margir af valkostum tækisins
flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt
að nota þessa valkosti í öllum símkerfum.
Gerðu símann að þínum
7
Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera
farið fram á að þú skráir þig sérstaklega
fyrir þessari þjónustu. Þú færð
leiðbeiningar hjá þjónustuveitunni þinni
ásamt upplýsingum og gjald fyrir
þjónustuna. Sum símkerfi kunna að hafa
takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig
hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi
styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og
þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að
tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða
ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast
þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann
einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann
heitum valmynda að hafa verið breytt, röð
þeirra og táknum. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar.