
Höfuðtól
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á
hóflegum hljóðstyrk og ekki halda tækinu
nærri eyranu þegar kveikt er á
hátölurunum.
Viðvörun:
Þegar höfuðtólið er notað getur það skert
heyrn á umhverfishljóðum. Ekki skal nota
höfuðtólið þar sem hætta getur stafað af.
Ef utanaðkomandi tæki eða annað
höfuðtól en það sem Nokia viðurkennir til
notkunar með tækinu er sett í samband
við USB-tengi skal gæta sérstaklega að
hljóðstyrknum.